Um Tíðarandann
Tíðarandinn hóf göngu sína í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 2006 í þeim tilgangi að safna saman og birta á aðgengilegum stað þá pólitísku umræðu sem fylgir kosningum. Hann hefur nokkrum sinnum verið endurbættur síðan og kemur út núna í sinni fjórðu mynd.
Hlutverkið er enn sem fyrr að safna og birta á aðgengilegum stað pólitíska umræðu, en í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu hefur einnig verið tekin ákvörðun um að birta á vefnum samantekt um hin ýmsu hitamál sem upp koma í þjóðfélaginu, í þeim tilgangi að halda utan um dreifða umræðu netsins. Efni þetta má finna í fréttaskýringum undir nafninu krepputal. Einnig er reynt að ná heildaryfirsýn yfir krosseigna- og krossskuldatengslin í íslensku viðskiptalífi. Tíminn einn mun leiða í ljós hversu vel það tekst.
Verkefni sem þetta er miklu stærra að umfangi en svo að einn einstaklingur valdi því aukinheldur sem vefsíða með tilgang sem þennan verður í raun aldrei fullkláruð. Þess vegna var ákveðið að fara í loftið með síðuna án þess að heildarmynd sé komin á margar færslur sem skrifa þarf og ýmis tengsl sem eru þegar ljós. Í fyllingu tímans er engu að síður stefnt að því að athugasemdir notenda verði til þess að aðstoða okkur í að fullvinna sem flestar færslur. Sem dæmi um nær fullunnar færslu - þar til frekari upplýsingar fást - er frásögn af 100 milljarða millifærslum Kaupþings og vísbending um hvers konar færslur tengslanetin verða er hálfunnin frásögn af Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga.
Eftir sem áður eru umræðuflokkarnir á sínum stað.
Á bak við Tíðarandann standa nokkrir aðilar. Ábyrgðarmaður er Elfur Logadóttir lögfræðingur.