Hannes Smárason
Tugmilljóna styrkveitingar einstakra félaga til Sjálfstæðisflokksins
Fréttir bárust af því að FL Group hafi styrkt Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum fyrir gildistöku laga sem settu hámark á framlög til stjórnmálaflokka. Þann 1. janúar 2007 tóku gildi lög sem settu 300.000 króna þak á árlegt framlag til stjórnmálaflokka á Íslandi. Fréttastofa Stöðvar 2 hafði séð gögn sem sýna að 29. desember 2006 hafi 30 milljónir króna verið yfirfærðar af reikningi FL Group inn á reikning Sjálfstæðisflokksins. Lögin voru afgreidd 21. desember, átta dögum fyrir millifærsluna.
Fjárfestingafélagið Freyr
litlar upplýsingar um þetta félag annað en að það átti hlut í Kaupþingi banka fyrr á árum.
Sjóðir tryggingafélaganna
Oddaflug eignarhaldsfélag ehf.
Oddaflug eignarhaldsfélag er fjárfestingafélag Hannesar Smárasonar.
Í ágúst 2006 var Oddaflug stærsti hluthafi í FL Group með 1.451.183.777 hluti (23.63% af heildarhlutafé).
Icelandair Group
Icelandair Group er eitt af félögunum sem Hannes Smárason og félagar í FL Group bjuggu til úr gömlu Flugleiðum til þess að selja í bútum og losa fé. Einn af kaupendum Icelandair var Langflug, félag í eigu Eignarhaldsfélagsins Samvinnutryggingar og FS7 (Finns Ingólfssonar).
FL Group hf.
FL Group varð til eftir að Hannes Smárason og félagar eignuðust Flugleiðir og skiptu félaginu upp í einingar sem síðan voru flestar, ef ekki allar seldar (bútuðu það niður Gekko style).
Lýsingar (prospectus) félaga á markaði gefa oft upplýsingar sem nýtast vel í skoðun á tengslum milli aðila. Neðangreindar upplýsingar um FL Group og tengsl stjórnar og stjórnenda félagsins við önnur félög er meðal annars að finna í tveimur lýsingum félagsins annarri frá ágúst 2006 og hinni frá september 2007.
Stjórnarmenn í FL Group fyrr og nú
Skarphéðinn Berg Steinarsson
Stjórnarformaður frá 09.07.2005-
Oddaflug B.V.
FL Investment ehf.
FL Investment ehf. er dótturfélag FL Group hf. (nú Stoða hf.) og hefur haldið utan um fjárfestingar á vegum FL Group hf., t.d. í Kaupþingi banka og Kögun.
Eignarhaldsfélagið Sveipur ehf.
Kennitala: 700902-2930
Eignarhaldsfélagið Sveipur er félag sem var á lista yfir 20 stærstu hluthafa Kaupþings í ársskýrslum fyrir árin 2003 og 2004.
Eignarhaldsfélagið Sveipur ehf. hefur í dag, 27. júní 2003, með kaupum á félagi eignast meira en 5% af nafnverði hlutafjár í Kaupþingi Búnaðarbanka hf. Eignarhlutdeild eignarhaldsfélagsins Sveips ehf. og tengdra aðila eru nú 5,88 % eða 24.253.207 hlutir en var áður 4,47% eða 18.441.615 hlutir.
Eignarhaldsfélagið Sveipur ehf. er að fullu í eigu Hannesar Smárasonar.(lais, 27.06.03)
Eignarhaldsfélagið er skráð til heimilis á Fjölnisvegi 11 í Reykjavík. Önnur félög sem skráð eru á sama heimilisfang eru: