Pálmi Haraldsson

Sterling hringekjan

Hringekjan með Sterling er líklegast sú mestumfjallaða í íslensku viðskiptalífi undanfarin misseri.

Fons hf.

Eignarhaldsfélagið Fons er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar.

 

Fons er eigandi að ýmsum félögum. Átti meðal annars FS37 ehf. sem síðar var breytt í Stím ehf. og FS38 ehf. sem lánaði FS37 ehf. 2,5 milljarða króna í október eða nóvember 2007, til þess eins að afskrifa lánið í ársreikningi fyrir árið 2007.

 

Upplýsingar í ársreikningum:

ársreikningum Fons fyrir rekstrarárin 2004, 2005 og 2006 var skilað í júní 2008 eftir mikinn fréttaflutning, f.o.fr. á síðum 24 stunda. Ársreikningi fyrir árið 2007 hefur ekki enn verið skilað. Miklir annmarkar eru þó á ársreikningi ársins 2006 og þar kemur m.a. fram að:

Leynifélagið Stím

Margt hefur verið skrafað og skrifað um félagið Stím sem stofnað var í fyrra og keypti stóra hluti í Glitni og FL Group á síðasta ári. Hafa margir talið að hér sé um mikið leynifélag að ræða sem notað hafi verið til þess að véla með verð á hlutum í Glitni og FL Group. Morgunblaðið birti langa fréttaskýringu eftir Agnesi Bragadóttur þar sem böndin voru talin berast til Jóns Ásgeirs og Hannesar Smárasonar, sem að sögn stóðu að stofnun einkahlutafélagsins FS 37 ehf. sem síðar var breytt í Stím ehf. Síðar bárust af því fréttir að Pálmi Haraldsson í Fons hefði stofnað FS 37 ehf. og lánað til þess félags fé frá öðru einkahlutafélagi úr hans röðum, FS 38 ehf.
 

Syndicate content