Landsbankinn

Tugmilljóna styrkveitingar einstakra félaga til Sjálfstæðisflokksins

Fréttir bárust af því að FL Group hafi styrkt Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum fyrir gildistöku laga sem settu hámark á framlög til stjórnmálaflokka. Þann 1. janúar 2007 tóku gildi lög sem settu 300.000 króna þak á árlegt framlag til stjórnmálaflokka á Íslandi. Fréttastofa Stöðvar 2 hafði séð gögn sem sýna að 29. desember 2006 hafi 30 milljónir króna verið yfirfærðar af reikningi FL Group inn á reikning Sjálfstæðisflokksins. Lögin voru afgreidd 21. desember, átta dögum fyrir millifærsluna.

 

Félögin á Tortola

136 félög sem skráð eru á Tortola fengu leyfi til að starfa á Íslandi á árunum 2000-2008. Morgunblaðið hefur lagt í mikla heimildarleit vegna þessa. Eftirfarandi tvær greinar birtust í Viðskiptablaði Morgunblaðsins 12. febrúar 2009.

 

Tryggva þáttur Jónssonar

Allir þekkja aðkomu Tryggva Jónssonar að Baugsmálinu og sumir (tengill á Jón Gerald) telja jafnvel Tryggva höfuðpaurinn í útrásarplottinu (tengil í brennpunkt).

 

Síðan hætti Tryggvi hjá Baugi og sleit öll tengsl við félagið (finna yfirlýsingu hans um efnið) - eða hvað. það var upplýst í fréttum RÚV að kvöldi 9. janúar 2009 að Tryggvi hefði í störfum sínum fyrir Landsbankann haft afskipti af viðskiptum með eða við fyrirtæki í eigu Baugsfjölskyldunnar, þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar um annað bæði frá Tryggva sjálfum og Landsbankanum (finna yfirlýsingarnar).

 

Rannsóknin á hegðun bankanna í aðdraganda hrunsins

FME fól endurskoðunarfyrirtækjum að rannsaka tiltekna þætti í aðdraganda hruns bankanna.

Tilboð Breta vegna flutninga Icesave í breska lögsögu

Það var athyglisverð sprengja sem Björgólfur Thor varpaði fram í Kompásþætti í október síðastliðnum.

Viðskipti peningamarkaðssjóða

Þeir urðu frægir að endemum peningamarkaðssjóðir viðskiptabankana á síðustu vikunum fyrir, og fyrstu vikunum eftir fall.

Fréttir skoðaðar í nýju ljósi eftir hrun

Ýmsar fréttir birtust á síðustu dögum Gamla Íslands, sem skoða má í öðru ljósi eftir hrun.

Syndicate content