Finnur Ingólfsson

Finndu Finn

Það hefur verið með ólíkindum að fylgjast með fréttum og uppljóstrunum undanfarin misseri sérstaklega þegar horft er til þess hversu víða armar Finns Ingólfssonar hafa legið. Nú síðast voru auðveldlega rakin tengsl Arnars Björnssonar hjá Reykjavík Invest og Reykjavík Capital við Finn. Sú umræða spratt upp í tengslum við sölu skilanefndar Landsbankans á hlutum í Byr til Arnars.

 

Tengsl Finns Ingólfssonar við hina ýmsu arma viðskiptalífsins verða rakin hér.

Merkar starfsstöðvar: Suðurlandsbraut 18

Á Suðurlandsbraut 18 eru yfir 100 félög til húsa, ef marka má frétt RÚV frá 17. janúar 2009.

 

Rétt er að ítreka staðsetning fyrirtækja í húsi Lögmanns S-hópsins gerir félag ekki sjálfkrafa grunsamlegt, en tíminn mun leiða í ljós hversu mörg þessara félaga munu reynast tengjast honum eða öðrum þeim sem um er fjallað á þessum vef.

 

Icelandair Group

Icelandair Group er eitt af félögunum sem Hannes Smárason og félagar í FL Group bjuggu til úr gömlu Flugleiðum til þess að selja í bútum og losa fé. Einn af kaupendum Icelandair var Langflug, félag í eigu Eignarhaldsfélagsins Samvinnutryggingar og FS7 (Finns Ingólfssonar).

 

Fjárfestingafélagið Máttur ehf.

Fjárfestingafélagið Máttur keypti hlut Finns Ingólfssonar (FS7 ehf.) í Icelandair Group.

 

Pr. maí 2006 átti Glitnir 50% hlut í Fjárfestingafélaginu Mætti. Eignaðist 15,6% við söluna á Sjóvá, hafði áður eignast 34,4%. Sjóvá á hinn helminginn í félaginu.

 

Athugasemd á bloggsíðu segir að Gunnlaugur Sigmundsson faðir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins hafi keypt hlut í Fjárfestingafélaginu Mætti þegar hann seldi Kögun á árinu 2006 - staðfesta.

FS7 ehf.

FS7 ehf. er fjárfestingafélag Finns Ingólfssonar.

 

Eignir:

Langflug ehf. Sjá breytingar á eignarhaldi við umfjöllun um það félag.

Icelandair Group hf.

 

 

http://www.dv.is/frettir/2009/1/9/finnur-tapadi-miklu/

Langflug ehf.

Langflug var stofnað haustið 2006 um eignarhlut sem Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga keypti í Icelandair Group hf.

 

Eignir:

Icelandair Group 32% (sjá breytingu á hlutfalli í skýringum á samskiptum FS7 ehf. og Langflugs hér fyrir neðan).

 

Eigendur.

Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga

FS7 ehf. (byrjaði í ca 1%)

 

Hlutur FS7 ehf. stækkaði í (?rúm?) 25% í desember 2006 þegar félagið keypti 25% hlut í félaginu fyrir einn milljarð króna (á genginu 1,00) auk þess að taka á sig ábyrgð á fjórðungshlut skulda Langflugs.

S-hópurinn

S-hópurinn er ekki eiginlegt félag heldur nafnið á þeim hópi fyrirtækja sem sameiginlega keypti Búnaðarbankann árið 2003. Hópurinn dró (?dregur) nafn sitt af tengslum sínum við samvinnuhreyfinguna gömlu, þar á meðal Samband íslenskra samvinnufélaga.

 

Keyptur var 45,8% hlutur í Búnaðarbankanum og kaupendur voru Ker, VÍS, Samvinnulífeyrissjóðurinn og Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga.

 

Helstu persónur og leikendur í S-hópnum voru (eru?):

Finnur Ingólfsson

Helgi S. Guðmundsson

Ólafur Ólafsson

Þórólfur Gíslason

 

Óunnið vegna þessara tengslanets

(tengja á "term" fyrir hvern fyrir sig, sem birtir lista yfir tengdar færslur)

 

Samvinnusjóðurinn ses.

Samvinnusjóðurinn er sjálfseignarstofnun sem eignast átti þá hluti í Gift hf. sem ekki yrði ráðstafað til viðskiptavina gömlu Samvinnutrygginga vegna þess að þeir voru látnir eða uppfylltu ekki lengur það skilyrði sem sett var, að vera í viðskiptum við VÍS á ákvörðunardegi fulltrúaaráðsins.

 

Finnur Ingólfsson er stjórnarformaður Samvinnusjóðsins.

VÍS, Vátryggingafélag íslands

(skrifa um hvenær Finnur Ingólfsson og félagar "eignuðust" VÍS).

 

Eigendur VÍS áður en félagið var selt til Exista voru m.a.:

Kaupþing 29,6% (keypti af Keri)

Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 25,8%

Hesteyri 24,7%

Samvinnulífeyrissjóðurinn 10%

Eignarhaldsfélagið Andvaka 5,3%

(vantar eigendur 4,6% hluta)

 

Stjórnarformaður á þeim tíma var Þórólfur Gíslason.

Eignir VÍS á þessum tíma, m.a.:

Samskip

SÍF

Vinnslustöðin

 

Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar

Þessi færsla fjallar um form félagsins, eignir þess og eignarhald. Umfjöllun um misbeitingu félagsins og tengsl þess við hin ýmsu viðskipti í gegnum tíðina er að finna í öðrum þræði.

 

Samvinnutryggingar, upphaflega tryggingafélagið, var svokallað gagnkvæmt félag, þ.e. eigendur töldust þeir sem voru í viðskiptum við félagið á hverjum tíma. Með stjórn Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga eftir að starfsemi félagsins hafði verið flutt inn í VÍS, fer svokallað fulltrúaráð sem skipað er 24 framsóknarmönnum (finna hvernig skipað, skilst að það hafi endurnýjað sig innan frá, þ.e. fulltrúar valið nýja fulltrúa).

 

Syndicate content