Ólafur Ólafsson
Ófyrirleitnar lánveitingar til eigenda Kaupþings
Sjá einnig færsluna 100 milljarða millifærslur Kaupþings.
Fyrst kom teaser á mbl.is:
Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum hundruð milljarða króna, samkvæmt lánabók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum.
Um er að ræða stöðu útlána í lok júní 2008, þremur mánuðum fyrir hrun bankans. Stór hluti lánanna var veittur til eignarhaldsfélaga sem skráð eru í Hollandi og á Tortola-eyju, sem er ein af Bresku Jómfrúreyjunum.
Deeks Associates Ltd.
Deeks Associates Ltd. er eitt af Tortola félögunum, þ.e. félögum sem stofnuð eru á Tortóla og eiga einhvers konar viðskiptasamband við Ísland. Félagið var stofnað til þess að splitta upp "of stórum" hlut Serafin Shipping í Icelandic Group eftir sameiningu SH og Sjóvíkur. Félagið var annað tveggja félaga sem stofnað var á sama tíma og á sama stað í sama tilgangi. Hitt félagið er Fordace Limited.
Fordace Limited
Fordace Limited er eitt Tortola félaganna, þ.e. félaga sem stofnuð hafa verið á Tortóla en átt í einhvers konar viðskiptasambandi við Ísland. Félagið varð til þegar 6% eignarhluta Serafin Shipping í Icelandic Group var skipt upp á milli tveggja félaga til þess að forðast tilkynningaskyldu til Kauphallar á grundvelli 5% reglunnar. Hitt félagið heitir Deeks Associates og var einnig stofnað á Tortóla á sama tíma og Fordace.
Félögin á Tortola
136 félög sem skráð eru á Tortola fengu leyfi til að starfa á Íslandi á árunum 2000-2008. Morgunblaðið hefur lagt í mikla heimildarleit vegna þessa. Eftirfarandi tvær greinar birtust í Viðskiptablaði Morgunblaðsins 12. febrúar 2009.
Q Iceland Holding ehf.
"Q Iceland Holding ehf, sem ber kennitöluna 560408-1370, hefur lögheimili að Efstaleiti 5 í Reykjavík og deilir því heimilsfangi með Logos lögmönnum og fleiri fyrirtækjum, m.a. 11 fyrirtækjum sem bera nafnið ELL49, Ell 154 og svo framvegis."
"Q Iceland Finance ehf, sem ber kennitöluna 510708-0240, er hinsvegar til heimilis að Suðuðurlandsbraut 18 og deilir því heimilisfangi með ýmsum kunnulegum fyrirtækjum svo sem FS7 ehf, Gift fjárfestingafélag ehf, Egla hf, AB 101, AB 124, AB 179, AB180, AB 25, AB 88, Á bleiku Skýi ehf (kvikmyndaframleiðsluarmur Baugs), Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga að ógleymdu “Félagi áhugamanna tölvuendurskoðenda” - en ekki er vitað hvað þetta síðastnefnda fyrirtæki sýslar með."
Q Iceland Finance ehf.
Q Iceland Finance, eignarhaldsfélag í eigu eignarhaldsfélags í eigu Sjeiks Al-Thani á 5,01% í Kaupþingi. Keyptir voru 37,1 milljón hlutir á genginu 690 þann 22. september 2008.
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/05/22/leitad_a_heimili_olafs/
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/05/22/husleit_gerd_a_10_stodum/
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/05/22/markadsmisnotkun_vardar_se...
http://visir.is/article/20090522/VIDSKIPTI06/551491517/-1
http://visir.is/article/20090522/VIDSKIPTI06/280042204/-1
http://visir.is/article/20090522/VIDSKIPTI06/825977316/-1
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item267031/
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item267010/
http://eyjan.is/blog/2009/05/22/serstakur-saksoknari-gerdi-husleitir-a-1...
Sjeikinn frá Katar
Það er nokkuð mögnuð þróun frásagnarinnar af peningunum frá Katar ... sem komu frá Íslandi, ferðuðust til Jómfrúreyjanna bresku og aftur til Íslands, með viðkomu í nokkrum félögum.
- Eða fóru þeir til Íslands aftur?
Merkar starfsstöðvar: Suðurlandsbraut 18
Á Suðurlandsbraut 18 eru yfir 100 félög til húsa, ef marka má frétt RÚV frá 17. janúar 2009.
Rétt er að ítreka staðsetning fyrirtækja í húsi Lögmanns S-hópsins gerir félag ekki sjálfkrafa grunsamlegt, en tíminn mun leiða í ljós hversu mörg þessara félaga munu reynast tengjast honum eða öðrum þeim sem um er fjallað á þessum vef.
Alfesca hf.
Kjalar Invest B.V.
http://news.icex.is/newsservice/MMIcexNSWeb.dll/newspage?language=IS&pag...
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2007/06/22/bref_kjalar_og_eglu_i_...
http://www.visir.is/article/20071207/VIDSKIPTI06/112070210
http://www.visir.is/article/20080305/VIDSKIPTI0803/103050117/0/VIDSKIPTI01
Kjalar invest bv. er íslenskt fjárfestingafélag skráð í Hollandi.
Kjalar er annar stærsti hluthafi í Kaupþing banka með 9% hlut. Stærsti hluthafi í Alfesca með 36% hlut. Það á 50% í Mastur hf., á móti Samvinnulífeyrissjóðnum, sem á 11% í Samskip hf.
Hjörleifur Jakobsson er forstjóri Kjalars og Ólafur Ólafsson er stjórnarformaður. (Wikipeda.org, 28.01.07)