Þáttur Gunnars Páls Pálssonar

Gunnar Páll Pálsson formaður VR hefur starfað hjá verkalýðsfélaginu frá 1991, fyrst sem forstöðumaður fjármála- og hagdeildar VR og síðan sem formaður frá árinu 2002. Samkvæmt vefsíðu VR situr Gunnar Páll í miðstjórn Alþýðusambandsins og í stjórnum Landssambands íslenskra verslunarmanna, Lífeyrissjóðs verslunarmanna og KB banka (Kaupþings).

 

Verslunarmannafélag Reykjavíkur skipti um nafn fyrir nokkru og heitir í dag einfaldlega VR. Á vefsíðu félagsins má sjá að í hugum þeirra sem þar ráða, standa stafirnir VR fyrir virðingu og réttlæti. Það þótti því kaldhæðni örlaganna þegar formaður VR var staðinn að því að stunda allt annað en virðingu og réttlæti gagnvart félagsmönnum VR hvers hagsmunagæsla á að vera hans forgangsmál.

 

Sem stjórnarmaður í Kaupþingi banka hf. stóð Gunnar Páll að því að fella niður ábyrgðir lykilstarfsmanna bankans vegna lána sem þeir höfðu tekið vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Gunnar Páll var reynslumesti stjórnarmaður Kaupþings þegar ákvörðunin var tekin, hann hafði einn stjórnarmanna setið í stjórn bankans frá árinu 2001.

 

Um miðjan janúar 2009 bárust síðan af því fréttir að Gunnar Páll hafi setið í lánanefnd Kaupþings banka sem lánaði vildarvinum bankans 84 milljarða í ágúst og september 2008 - hálfum mánuði fyrir fall bankanna. Heimildir herma að hér sé um sömu milljarðana að ræða og fjallað er um í færslu annars staðar hér á síðunni undir heitinu 100 milljarða millifærslur Kaupþings.

 

Óunnið vegna þessarar fréttaskýringar

Skýra frá ástæðum Gunnars Páls fyrir setunni í stjórn Kaupþings, og ástæðunni fyrir því að hann fylgdi mönnum í ákvörðunum eins og þessari.

http://ragnar73.blog.is/blog/ragnar73/entry/776500/

Skrá nýja athugasemd

Innihald þessa reits verður ekki birt opinberlega.

  • Vefslóðir og netföng breytast sjálfkrafa í tengla.
  • Leyft HTML: <a> <p> <span> <div> <h1> <h2> <h3> <h4> <h5> <h6> <img> <map> <area> <hr> <br> <br /> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd> <table> <tr> <td> <em> <b> <u> <i> <strong> <font> <del> <ins> <sub> <sup> <quote> <blockquote> <pre> <address> <code> <cite> <embed> <object> <param> <strike> <caption>
  • Línur og málsgreinar myndast sjálfkrafa.
  • Þú getur vitnað í fleiri færslur með því að setja [quote] utan um tilvitnunina.

Frekari upplýsingar um sniðmátsmöguleika

CAPTCHA
Vinsamlegast svaraðu eftirfarandi spurningu, sem greinir á milli manns og músar.
5 + 4 =
Leystu dæmið og skráðu lausnina. T.d. ef spurningin er 1+3, skráirðu 4.