Leynifélagið Stím

Margt hefur verið skrafað og skrifað um félagið Stím sem stofnað var í fyrra og keypti stóra hluti í Glitni og FL Group á síðasta ári. Hafa margir talið að hér sé um mikið leynifélag að ræða sem notað hafi verið til þess að véla með verð á hlutum í Glitni og FL Group. Morgunblaðið birti langa fréttaskýringu eftir Agnesi Bragadóttur þar sem böndin voru talin berast til Jóns Ásgeirs og Hannesar Smárasonar, sem að sögn stóðu að stofnun einkahlutafélagsins FS 37 ehf. sem síðar var breytt í Stím ehf. Síðar bárust af því fréttir að Pálmi Haraldsson í Fons hefði stofnað FS 37 ehf. og lánað til þess félags fé frá öðru einkahlutafélagi úr hans röðum, FS 38 ehf.
 

Útgáfa stjórnarformannsins

 

Fjölmiðlum barst yfirlýsing frá stjórnarformanni Stím ehf., laugardaginn 29. nóvember 2008. Vildi stjórnarformaðurinn með yfirlýsingu sinni leiðrétta ranga umfjöllun fjölmiðla um málefni einkahlutafélagsins:

Vegna mikillar og oft rangrar umfjöllunar fjölmiðla um málefni einkahlutafélagsins Stím ehf. sé ég mig knúinn til að upplýsa um mína eignaraðild og aðkomu að félaginu. Jafnframt hef ég fengið leyfi annarra hluthafa félagsins til að opinbera hluthafalista Stím ehf.

Stím ehf. var stofnað 16. nóvember 2007. Í samþykktum félagsins kemur fram að tilgangur félagsins sé eignarhald, umsýsla, kaup og sala verðbréfa ásamt lánastarfsemi og öðrum tengdum rekstri. Ég hef gegnt stjórnarformennsku í félaginu frá upphafi og er í dag einn í stjórn þess. Samtals á ég 7,5%  hlut í Stím ehf. sem ég greiddi fyrir með reiðufé á sínum tíma. Ég vil taka það fram og ítreka að ég fékk ekki lánafyrirgreiðslu fyrir hlutafénu. Ég greiddi hlutaféð með eigin fjármunum. Þetta viðskiptatækifæri var kynnt fyrir mér af starfsmönnum Glitnis og mér boðin þátttaka ásamt fleiri fjárfestum.

Hlufhafalisti Stím ehf:
32,5% Félag stofnað af gamla Glitni sem ætlað var til endursölu
15% Gunnar Torfason
10% SPV fjárfesting hf.
10% BLÓ ehf.  - félag að fullu í eigu Óskars Eyjólfssonar
10%  Ofjarl ehf. – félag að fullu í eigu Jakobs Valgeirs Flosasonar og Ástmars Ingvarssonar
8,75% Viðskiptavinir  Saga Capital fjárfestingabanka
6,25% Saga Capital fjárfestingabanki
2,5% Jakob Valgeir Flosason
2,5% Ástmar Ingvarsson
2,5% Flosi Jakob Valgeirsson.

Stím ehf. keypti hluti í FL Group og Glitni við stofnun fyrir samtals 24,8 milljarða króna. Félagið keypti 3,8% hlut í FL Group fyrir 8,4 milljarða króna og 4,3% hlut í Glitni fyrir 16,4 milljarða króna. Glitnir lánaði félaginu samtals 19,6 milljarða króna vegna kaupanna, eða tæp 80%, sem er sambærilegt hlutfall og boðið var í framvirkum samningum hjá bönkum á þessum tíma. Glitnir var með tryggingu í öllum bréfunum. Lánið var kúlulán til tólf mánaða með 20,15% óverðtryggðum vöxtum og 1% lántökugjaldi.

Ég samþykkti að taka þátt í þessari fjárfestingu líkt og aðrir hluthafar og batt vonir við að bréf í bæði FL Group og Glitni sem höfðu lækkað mikið, myndu hækka umtalsvert á næstu tólf mánuðum. Þetta var í samræmi við væntingar á markaði á þessum tíma. Þessar væntingar gengu ekki eftir og hef ég tapað öllu því hlutafé sem ég lagði inn í Stím ehf.

Margar rangar fullyrðingar sem settar hafa verið fram í þessu máli snúa bæði að mér persónulega og félaginu.

Stím ehf. er ekki leynifélag. Félagið var myndað af hópi fjárfesta og í einu og öllu var stofnað til þess samkvæmt íslenskum lögum. Því hefur verið haldið fram að ég hafi fengið greitt fyrir að ljá félaginu nafn mitt. Þetta er alfarið rangt og ég setti eigin fjármuni í Stím ehf.

Ég undrast að bankaleynd í þessu máli hafi verið brotin og það svo gróflega sem raun ber vitni. Það eru mikil vonbrigði. Þetta hlýtur að vera öllum þeim sem stunda fjárfestingar og viðskipti hjá bankastofnunum mikið áhyggjuefni.

Í ljósi þessa hef ég ákveðið að upplýsa um lánastöður fyrirtækja í minni eigu að öllu leiti eða hluta sem eru í viðskiptum við Landsbankann. Samtals er um að ræða sjö fyrirtæki og þar á meðal er fiskvinnslufyrirtækið Jakob Valgeir ehf. sem er einn stærsti atvinnurekandi á Bolungarvík. Um er að ræða erlend lán og miðað við gengi íslensku krónunnar nema lán þessara félaga nú rúmlega 19 milljörðum króna. Fyrir einu ári námu þessar skuldir rúmum 8,5 milljörðum króna. Skuldir þessara félaga hafa því hækkað um rúma 10 milljarða króna á einu ári vegna gengisþróunar.

Að lokum vil ég segja að mér finnst fjölmiðlar hafa farið afar frjálslega með staðreyndir þegar kemur að Stím ehf. og minni persónu í tengslum við félagið. Ég hefði viljað komast hjá því að tjá mig opinberlega um mín persónulegu fjármál en tel mig tilneyddan til þess eftir þær rangfærslur sem ítrekað hafa verið settar fram. Ég óska jafnframt eftir því að einkalíf mitt og minnar fjölskyldu njóti þeirrar friðhelgi sem almennt er talið eðlilegt.

Reykjavík 29. nóvember
Jakob Valgeir Flosason, stjórnarformaður Stím ehf.

Útgáfa Morgunblaðsins

 

Morgunblaðið birti í sunnudagsblaði sínu umfangsmikla fréttaskýringu þar sem meðal annars voru birtar upplýsingar úr lánabók Glitnis. Á mbl.is birtist þessi frétt um greinina þann 22. nóvember 2008:

Helstu stjórnendur Glitnis ásamt fulltrúum stærsta hluthafans í Glitni, FL Group, brutu allar verklagsreglur við lánveitingar í nokkrum tilvikum í fyrrahaust. Þetta kemur fram í fréttaskýringu Agnesar Bragadóttur í sunnudagsblaði Morgunblaðins.

Fram kemur, að lánveitingar upp á marga tugi milljarða króna voru ákveðnar af örfáum mönnum án þess að áhættumat færi fram eða að um þær væri fjallað í lánveitinganefnd bankans. Líklegt er talið að krafist verði opinberrar rannsóknar á viðskiptunum.

Í fréttaskýringunni er m.a. rakið laumuspil Glitnis með helstu eigendum FL Group sem gekk út á viðskipti með bréf í FL Group þar sem Glitnir var seljandi og laumufélag,  FS37 ehf.,  með leynieigendur á vegum stærstu hluthafanna var kaupandi.

Fram til 15. nóvember í fyrra hafði Glitnir verið að kaupa öll bréf í FL Group sem voru á markaði til þess að reyna að halda uppi gengi bréfa í FL Group og þegar  FS37 ehf. keypti 4,11% í FL Group var Glitnir banki kominn með 3,59% hlut í FL. FS37 fékk síðar nafnið Stím.

Jón Ásgeir Jóhannesson og Lárus Welding voru þrjár mínútur sléttar að svara ásökunum Agnesar með yfirlýsingum.

 

Óunnið í tengslum við þessa fréttaskýringu

Ljúka frásögninni, fullt af öðrum fréttum hafa birst sem þétta efnið. Stytta tilvitnanir niður í það sem máli skiptir - birta jafnvel í bútum í tengslum við umfjöllun á ýmsum stöðum. Flytja upplýsingar um eigendur yfir í tengslanet > stím. o.fl.

1 »  Berast böndin aftur að Samherja?

Þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnarformanns Stím ehf. frá 29. nóvember 2008 þá liggur enn í loftinu sú trú manna að Samherji hafi komið að kaupunum í Glitni og FL Group í gegnum Kaldbak. Sem aftur leiðir til þess að menn velta fyrir sér hvort Kaldbakur sé að einhverju leyti raunverulegur eigandi tiltekinna hluta sem aðrir aðilar eru skráðir fyrir. Morgunblaðið sagði frá kaupunum í Glitni og FL Group í frétt þann 15. nóvember 2007 með eftirfarandi hætti:

Mikil viðskipti áttu sér stað með hlutabréf Glitnis og FL Group í gær. Fyrir opnun kauphallar OMX á Íslandi var í tvígang tilkynnt um tæplega 8,2 milljarða viðskipti í Glitni, á genginu 25,5 krónur á hlut, og tæplega 4,2 milljarða króna viðskipti í FL Group, á genginu 22,05 krónur á hlut. 8,2 milljarða króna hlutur í Glitni á áðurnefndu gengi jafngildir um 2,15% af heildarhlutafé félagsins og 4,2 milljarða króna hlutur í FL á genginu 22,05 jafngildir um 2,05% hlut í félaginu. Þetta má síðan margfalda með tveimur og þá er ljóst að samanlagt 4,3% hlutur í Glitni skipti um eigendur og samanlagt 4,1% hlutur í FL Group.

Engar tilkynningar um þessi viðskipti hafa borist í fréttakerfi kauphallar en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins munu nýir hluthafar hafi verið að bætast í hluthafahópa félaganna, innlendir hluthafar. Mun það vera sjóður á vegum Kaldbaks sem eru meðal þeirra sem komu að viðskiptunum með bréf Glitnis. Kaldbakur er dótturfélag Samherja og er Þorsteinn Már Baldvinsson því að koma á ný inn í hluthafahóp bankans. Ennfremur herma heimildir Morgunblaðsins að hann sé á meðal þeirra sem keyptu hlutinn í FL Group.

Þorsteinn Már vildi ekki staðfesta að hafa komið nálægt viðskiptunum þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gær.

Níels A. Ársælsson sagði frá því í apríl 2008 að Samherji hefði keypt fyrir 25 milljarða í Glitni og FL Group í gegnum Kaldbak og fært eign sína yfir í einkahlutafélagið Stím ehf. Strax í apríl greindi hann einnig frá því að það vantaði eina 15 milljarða uppá veð fyrir þeim lánum sem tekin voru til þess að standa undir kaupunum. Greindi hann frá þessu í tengslum við frétt Morgunblaðsins dags. 8. apríl 2008 um tilfærslu eignarhluts í FL Group til Kaldbaks, fjárfestingafélags í eigu Samherja. Hvernig Kaldbakur tengdist þeim eignatilfærslum innan Baugs sem var aðalefni fréttarinnar verða aðrir fróðari að upplýsa. Að kvöldi 7. apríl 2008 hljóðaði fréttin á mbl.is svona:

Baugur Group er að selja eignarhlut sinn í fjölmiðla-, fjarskipa, fjármála- og fjárfestingarfélögum á Íslandi að því er kemur fram í Viðskiptablaðinu á morgun. Þetta kom fram í síðari fréttum Sjónvarpsins í kvöld. Söluverðið er 65 milljarðar króna og kaupendur tengjast Baugi.

Fram kom að félagið Stoðir Invest, sem er í eigu stærstu eigenda Baugs, kaupir fjölmiðla- og fjarskiptafélögin, þar á meðal 365 miðla og Teymi, en Styrkur Invest, sem er í eigu Kaldbaks, kaupir hluti Baugs í fjármála- og fjárfestingarfélögum.

Mun Baugur einbeita sér að fjárfestingum í smásöluverslun.

Um kvöldið var fyrirsögnin: "Baugur selur fjölmiðla- og fjármálafélög", morguninn eftir hafði fyrirsögnin breyst: "Kaldbakur eignast 12,5% í FL Group á genginu 7,28." Efnislega var fréttin sú sama.

2 »  Huldumenn að baki Stím

Eftirfarandi grein birtist í Viðskiptablaði Morgunblaðsins 20. nóvember síðast liðinn:

Hinn 14. nóvember 2007 var tilkynnt um viðskipti með bréf í FL Group og Glitni fyrir samtals 24,8 milljarða króna. Um var að ræða tvær tilkynningar um 8,2 milljarða viðskipti í Glitni á genginu 25,5 og tvenn kaup upp á 4,2 milljarða króna í FL Group, sem nú heita Stoðir, á genginu 22,05. Kaupandinn var félag sem hét FS37 ehf. og eignaðist það með þessum viðskiptum 4,3 prósent hlut í Glitni og 4,1 prósenta hlut í FL Group. Nokkrum dögum síðar var nafni FS37 ehf. breytt í Stím ehf. Samþykktir Stím er skráðar 16. nóvember og var þá hlutafé félagsins aukið um tvo milljarða króna. Eini stjórnarmeðlimur félagsins var skráður Jakob Valgeir Flosason, útgerðarmaður frá Bolungarvík en félagið var, og er, skráð á sama heimilisfang og Saga Capital á Akureyri.

Glitnir var sjálfur seljandi
Sama dag og Stím keypti 4,11 prósenta hlut í FL Group seldi Glitnir og Glitnir Hedge (vogunarsjóður Glitnis) samtals 3,82 prósenta hlut sinn í félaginu. Glitnir seldi einnig 3,8 prósent í sjálfum sér sama dag og Stím keypti 4,30 prósent í bankanum á 16,4 milljarða króna. Því virðist langstærsti seljandi bréfanna sem Stím keypti hafa verið Glitnir sjálfur.

Stím seldi hluta bréfa sinna í FL Group (1,31 prósent) í desember í fyrra þegar nýtt hlutafé var gefið út. Gengi bréfa var þá 14,7 og virði hins selda hlutar hafði rýrnað um 900 milljónir króna frá kaupdeginum mánuði fyrr. Samt keypti Stím meira í FL Group í janúar (0,36 prósent til viðbótar) þegar gengi félagsins var enn að falla. Í lok þess mánaðar var eignarhlutur Stím í FL Group 3,16 prósent. Í febrúar fór gengi FL Group niður fyrir 10 og heildarvirði eigna Stím í félaginu undir þrjá milljarða króna.

Stím hóf síðan að selja bréf sín í FL Group um miðjan mars og fram í byrjun maí. Gengi félagsins féll á þeim tíma. FL Group var afskráð úr kauphöllinni skömmu síðar á genginu 6,69. Stím átti þá 89 þúsund hluti í félaginu. Stím virðist hafa selt sig alveg út úr Glitni seinni hluta marsmánaðar eða í byrjun apríl þegar gengi bréfa í Glitni var í kringum 17,5 og markaðsvirði hlutarins um 11,2 milljarðar króna. Í byrjun maí var Stím síðan aftur skráð fyrir 0,87 prósenta hlut, en þeir hlutir voru seldir aftur síðar í sama mánuði.

Hver á Stím?
Þegar Morgunblaðið náði tali af Jakobi Valgeiri, skráðum stjórnarformanni Stím, fyrir nokkru sagðist hann kannast við Stím en ekkert vilja segja um málið. „Ég er búinn að taka ákvörðun um að tjá mig ekkert um þetta félag. Ég nenni ekkert að segja já eða nei. Ég sé engan hag í því að vera að tjá mig um þetta félag.“ Stím var, og er, skráð til heimilis á sama heimilisfang og Saga Capital á Akureyri. Hjá Sögu fengust heldur engar upplýsingar um hverjir stæðu að félaginu.

Lánaði Glitnir Stím?
Lárus Welding, fyrrum bankastjóri Glitnis, var spurður hvort rétt væri að Glitnir hefði lánað Stím fyrir umræddum viðskiptum í Glitni og FL Group í Silfri Egils þann 21. september síðastliðinn. Þar svaraði Lárus því til að Stím væri „eflaust einn af okkar viðskiptavinum og þau viðskipti eru bara eins og með öll önnur viðskipti. Það hafa verið margir aðilar sem hafa verið að koma inn í fjárfestingar í bönkunum á mismunandi tímum.“ Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var gjalddagi lánsins frá Glitni til Stím um miðjan síðasta mánuð.

Þegar fyrirspurn um hvort Glitnir hefði lánað Stím fyrir viðskiptunum var beint til nýja Glitnis fengust þau svör en engar upplýsingar um það væri að fá þar. Fyrirspurnin ætti frekar heima hjá skilanefnd gamla Glitnis. Skilanefndin kannaðist heldur ekki við málið.

Neðanmáls í greininni birtist eftirfarandi klausa:

 

Ekki yfir fimm prósent
Morgunblaðið beindi þeirri fyrirspurn til Fjármálaeftirlitsins hvort það hefði með einhverjum hætti skoðað þessi viðskipti. Í svari FME kemur fram að svo hafi ekki verið þar sem Stím fór í hvorugu félaginu yfir fimm prósent atkvæðisréttar. Því hafi tilkynningaskylda innherja ekki átt við. Þegar FME var spurt hvort eðlilegt væri að félag gæti keypt hlutabréf fyrir 25 milljarða króna í skráðum félögum án þess að það lægi fyrir hverjir stæðu að því sagðist FME fylgjast í almennu eftirliti með útlánaáhættu fjármálafyrirtækja og ef ástæða þætti til að skoða mál frekar. Fjármálafyrirtækjum beri hins vegar „vitaskuld að þekkja viðskiptavin sinn áður en til viðskipta kemur og meta greiðsluhæfi hans og tryggingar að baki lánum“.

 

 

4 »  Skipulögð glæpastarfsemi!

Studd af Alþingi, opinberum stofnunum, lögfræðingum, viðskiptafræðingum, verkfræðingum, og endurskoðendum.

Þessir aðilar hafa brugðis almenningi í landinu og lítur allt út fyrir að lítil breyting verði þar á.

Ísland er ekki góður valkostur fyrir ungt fólk, því miður.

Skrá nýja athugasemd

Innihald þessa reits verður ekki birt opinberlega.

  • Vefslóðir og netföng breytast sjálfkrafa í tengla.
  • Leyft HTML: <a> <p> <span> <div> <h1> <h2> <h3> <h4> <h5> <h6> <img> <map> <area> <hr> <br> <br /> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd> <table> <tr> <td> <em> <b> <u> <i> <strong> <font> <del> <ins> <sub> <sup> <quote> <blockquote> <pre> <address> <code> <cite> <embed> <object> <param> <strike> <caption>
  • Línur og málsgreinar myndast sjálfkrafa.
  • Þú getur vitnað í fleiri færslur með því að setja [quote] utan um tilvitnunina.

Frekari upplýsingar um sniðmátsmöguleika

CAPTCHA
Vinsamlegast svaraðu eftirfarandi spurningu, sem greinir á milli manns og músar.
3 + 0 =
Leystu dæmið og skráðu lausnina. T.d. ef spurningin er 1+3, skráirðu 4.