Hrægammar kreppunnar

Þeir koma upp í hverri einustu kreppu hrægammarnir sem ætla að græða á óförum annarra. Frásagnir fyrir nokkrum vikum síðan um tilraunir Straums til þess að verða sér úti um gjaldeyri með því að sniðganga gjaldeyrishöftin eru dæmi um slíka hrægamma. Frásagnir morgunsins (8. apríl 2009) af starfsmönnum Askar Capital virðast hins vegar ennþá grófari.

Þremenningarnir, sem urðu uppvísir  að brotum á gjaldeyrisviðskiptum hjá Askar Capital, nýttu sér þann mismun sem er á gengisskráningu Seðlabanka Íslands og skráðu gengi gjaldmiðla erlendis. [...]

Áður en gjaldeyrishöftin voru hert nýverið tíðkaðist það menn urðu sér úti um íslenskar krónur á mun lægra gengi en gengi Seðlabankans. Dæmi eru um að þeir hafi fengið á þriðja hundrað krónur fyrir hverja evru í stað 161 krónu, sem var opinbert gengi á þeim tíma. Þeir buðu síðan, til að mynda, framleiðendum sjávarafurða að kaupa fiskinn í krónum. Þannig gátu þeir keypt sjávarafurðir á mun lægra verði en eftir hefðbundnum leiðum og seldu hann svo erlendis fyrir evrur, en lækkuðu um leið verðið. (mbl.is, 08.04.09)

Það sem gerir viðskipti þessara starfsmanna Askar Capital verri en hinna (þar á meðal Straums) er misnotkun þeirra á aðstöðu sinni hjá Askar og ósvífnar aðgerðir þeirra í þágu eigin félags - í vinnutíma sínum hjá Askar. Þeir hættu hjá Askar til þess að hefja viðskipti að fullu í sínu eigin félagi.

Samkvæmt upplýsingum mbl.is hættu þremenningarnir ekki hjá bankanum fyrr en þeir höfðu komið sér upp drjúgum viðskiptum í gegnum félag sitt fram hjá Askar Capital. (mbl.is, 08.04.09)

 

 

 

 

Skrá nýja athugasemd

Innihald þessa reits verður ekki birt opinberlega.

  • Vefslóðir og netföng breytast sjálfkrafa í tengla.
  • Leyft HTML: <a> <p> <span> <div> <h1> <h2> <h3> <h4> <h5> <h6> <img> <map> <area> <hr> <br> <br /> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd> <table> <tr> <td> <em> <b> <u> <i> <strong> <font> <del> <ins> <sub> <sup> <quote> <blockquote> <pre> <address> <code> <cite> <embed> <object> <param> <strike> <caption>
  • Línur og málsgreinar myndast sjálfkrafa.
  • Þú getur vitnað í fleiri færslur með því að setja [quote] utan um tilvitnunina.

Frekari upplýsingar um sniðmátsmöguleika

CAPTCHA
Vinsamlegast svaraðu eftirfarandi spurningu, sem greinir á milli manns og músar.
3 + 7 =
Leystu dæmið og skráðu lausnina. T.d. ef spurningin er 1+3, skráirðu 4.