Sjeikinn frá Katar
Það er nokkuð mögnuð þróun frásagnarinnar af peningunum frá Katar ... sem komu frá Íslandi, ferðuðust til Jómfrúreyjanna bresku og aftur til Íslands, með viðkomu í nokkrum félögum.
- Eða fóru þeir til Íslands aftur?
Fyrsti þáttur, fögur saga af áhuga á bréfum í sterkum banka
Það bárust af því fréttir þann 22. september 2008 að sjeikinn Mohammed Bin Khalifa Al-Thani hefði eignast 5,01% í Kaupþingi í gegnum félögin Q Iceland Finance ehf. (QIF) og Q Iceland Holding (QIH). Að sögn Landsbankans voru allir hlutirnir sem keyptir voru, áður í eigu Kaupþings en ekki voru allir með samhljóða fréttaflutning. QIF sem skráð er fyrir hlutnum í Kaupþingi er að fullu í eigu QIH sem er að fullu í eigu sjeiksins. Í fréttatilkynningunni frá Kaupþingi var haft eftir Al-Thani:
We have followed Kaupthing closely for some time and consider this to be a good investment. Kaupthing's position is strong and we believe in the bank's strategy and management team, as Kaupthing has performed well in the current market turbulence and has proven it can change and adapt to a new reality in banking. We view our stake in Kaupthing as a long-term investment and look forward to a close relationship with the bank in the future.
Og stjórnarformaðurinn var einnig ánægður:
We are delighted to welcome H.H. Sheikh Mohammed Bin Khalifa Al-Thani as a shareholder of Kaupthing Bank. We are continually focused on attracting new investors to the bank and we are happy to see that our strategy of increasing the diversity of our shareholder base has proven fruitful. We look forward to working with H.H. Sheikh Mohammed in the future.
Fjölmiðlar gerðu fréttatilkynningunni góð skil (sjá fréttir RÚV, mbl.is, eyjunnar, vb.is) og greiningardeild Landsbankans taldi innkomu fjárfesta frá Katar styrkja bakhjarla bankans, enda um að ræða mjög fjársterkan aðila. Það sama (næstum orðrétt) sagði reyndar forstjóri Kaupþings í viðtali við RÚV. Jafnvel málverjar höfðu trú á kaupunum:
Kaupþing er nú varla að fara á hausinn fyrst Olíufurstar vilja fjárfesta í því.
Fjölmiðlarnir hófu að kynna sér hver maðurinn væri og Vísir færði okkur fréttir af því að Sjeikinn væri með ástríðu fyrir veðhlaupahestum. Blússandi hamingja yfir velgengni Kaupþings.
Annar þáttur, Kaupþing féll, að sögn vegna aðgerða Breta
tengja hér aðgerðir bresku fme gegn s&f við peningaflutninga kaupþings, m.a. til félaga í eigu sjeisksins. - finna fréttirnar af því að peningaflutningar Kaupþings hafi mögulega verið ástæðan.
Þriðji þáttur, tengslin við aðrar millifærslur Kaupþings
Og enn syrti í álinn þegar fréttir fóru að berast af því að Kaupþing hefði millifært hundrað milljarða króna út úr landinu rétt fyrir hrun. Í framhaldi af því bárust fregnir af því að lögreglu hefði borist nafnlaus ábending með frekari upplýsingum um þessar millifærslur, og enn bættust við upplýsingar þegar fjölmiðlar komust í gögnin sem PriceWaterhouse Coopers vann fyrir Fjármálaeftirlitið. Í öllu falli virðist ljóst að millifærslur á lánum frá Kaupþingi sem áttu sér stað fyrir hrun og fjallað er um annars staðar tengjast með einhverjum hætti verslun þessari með hlutafé í Kaupþingi.
Fjórði þáttur, Kaupþing lánaði fyrir kaupunum
Enn komust hlutabréfakaup sjeiksins í fréttirnar í desember þegar upplýst var að sjeikinn áleit fjárfestingu sína í Kaupþingi glatað fé. Í frétt á Vísi var haft eftir Telmu Halldórsdóttur sem þá var titluð talsmaður QIF að sjeikinn hafi greitt fyrir hlutinn „með reiðufé og mjög tryggum veðum í eignum sínum erlendis“ [leturbr. mín] og svo fór boltinn að rúlla.
Í grein sem Jón Þórisson sendi Agli Helgasyni er sett fram eftirfarandi hugleiðing:
Í ljósi þess að kaup Al-Thani í Kaupþingi áttu sér stað síðari hluta septembermánaðar, nokkrum dögum fyrir hrun bankanna, má velta upp þeirri spurningu, hvort raunverulegir fjármunir hafi verið í spilinu í þessum viðskiptum, eða hvort kaupin hafi verið hluti af “hringekjuleik “ bankans, þ.e. að peningarnir hafi komið frá Kaupþingi sjálfu og verið liður í þeim blekkingarleik sem var í gangi með bréf bankans? (silfur Egils, 9.12.08)
Fimmti þáttur, Ólafur Ólafsson í Samskipum enn einu sinni á bak við plott tengd erlendum aðilum
Vilhjálmur Bjarnason gengur svo langt að halda því blákalt fram að sjeikinn hafi verið leppur.
Óunnið í tengslum við þessa fréttaskýringu
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/01/19/olafur_segir_engan_hagnad_hafa_runnid_til_sin/
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/01/20/sigurdur_segir_engin_log_h...
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/01/20/milljardalan_an_ahaettu/
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/20/vildu_kaupa_fimmtung_i_kaupt...
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/01/19/ekkert_oedlilegt_vid_vidsk...
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/19/hundrud_milljarda_millifaerd...
http://visir.is/article/20090119/VIDSKIPTI06/126790815/-1
http://visir.is/article/20090119/VIDSKIPTI06/705428993
http://visir.is/article/20090119/VIDSKIPTI06/33710992
http://visir.is/article/20090120/VIDSKIPTI06/142314006
http://visir.is/article/20090119/VIDSKIPTI06/984938342/-1
http://visir.is/article/20090118/VIDSKIPTI06/627468290
http://visir.is/article/20090116/VIDSKIPTI06/232983802
http://visir.is/article/20090115/VIDSKIPTI06/548284720
http://visir.is/article/20090114/VIDSKIPTI06/697071533
http://eyjan.is/blog/2009/01/19/kaupthing-mal-al-thanis-hja-fme-sidan-i-...
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item246639/
http://www.malefnin.com/ib/index.php?showtopic=108592&pid=1348019&mode=t...
http://www.vb.is/frett/1/43750/hans-hatign-sheikh-mohamed-fra-katar-fjarfestir-i-alfesca
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/10/14/sjeik_haettir_vid_alfe...
http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item227428/
sjá einnig margar fréttir tengdar frá Q Iceland Finance færslunni sem ættu einnig heima hér.
1 » meira um lánin til sjeiksins
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/25/lanin_mogulega_logbrot/
Skrá nýja athugasemd