Feed items

Framsóknarmenn hjóla í Guðmund

Tveir framsóknarmenn í Skagafirði saka Guðmund Steingrímsson, þingmann Framsóknarflokksins, um þjónkun við ríkisstjórnina í ESB-málinu. Bréf, sem þeir sendu Guðmundi nýlega, var einnig komið í hendur annarra þingmanna Framsóknarflokksins. Í bréfinu, sem DV hefur undir höndum, er Halldór Ásgrímsson sakaður um að hafa beitt bolabrögðum til að ná völdum í flokknum og er Guðmundur átalinn fyrir að beita sams konar vinnubrögðum gegn formanni sínum.

Lesa meira →

Rooney með skot langt fram hjá

Breska slúðurblaðið Daily Mail heldur því fram að Wayne Rooney, framherji Manchester United og enska landsliðsins, hafi ítrekað haldið fram hjá eiginkonu sinni, Coleen Rooney, á meðan hún var ólétt. Segir blaðið að Rooney hafi viðurkennt þetta fyrir Coleen á laugardagskvöldið. Coleen ól hjónunum þeirra fyrsta barn, son að nafni Kai, fyrr á árinu.

Lesa meira →

Tekjuhalli 30 milljarðar á öðrum ársfjórðungi

Tekjuhalli hins opinbera var 30 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi samkvæmt Hagtíðindum Hagstofu Íslands. Tekju halli á sama tímabili í fyrra var 42 milljarðar.

Lesa meira →

Vitað frá upphafi að Herjólfur gæti lent í vandræðum

Efnisburður í innsiglingunni í Landeyjahöfn hægði á Herjólfi í gærkvöldi og ákvað skipstjórinn í kjölfarið að sigla ekki í morgun. Siglingastofnun segir að eldgosið í Eyjafjallajökli hafi sett strik í reikninginn varðandi höfnina.

Lesa meira →

Eiginkona bresks þingmanns reynist vera vændiskona

Brasilísk eiginkona breska þingmannsins Mike Weatherley gekk í gildru breska dagblaðsins Sunday Mirror sem í gær birti frétt sem afhjúpar hana sem starfandi vændiskonu. Weatherley kveðst ekki hafa hugmynd um að eiginkona hans hafi verið að starfa sem vændiskona en þingmaðurinn fullyrðir að þau hafi skilið að borði og sæng í febrúar síðastliðnum.

Lesa meira →

Háskólanemar fylltu dómssal Hæstaréttar

Laganemar háskólanna höfðu fyllt öll sæti í dómssal Hæstaréttar þegar mál um hvaða vextir gengistryggð lán eiga að bera var tekið fyrir í morgun. Fulltrúar fjölmiðla komust ekki fyrir í salnum en salnum hafði verið lokað þegar þá bar að dyrum og þeim ekki hleypt inn.

Lesa meira →

Fabregas neyddur til að vera áfram hjá Arsenal

„Barcelona gerði allt sem það gat til að landa mér en Arsenal sagði mér að ég þyrfti að vera áfram,“ segir Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal. Félagaskiptasaga sumarsins var sú að Barcelona ætlaði sér spænska landsliðsmanninn en Arsenal-menn gerðu hvað þeir gátu til þess að halda honum og á endanum tókst það.

Lesa meira →

„Það eru allir frekar æstir“

„Það eru allir frekar æstir og taka kannski svolítið sterkt til orða,“ segir Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarprestakalli, um þá fullyrðingu að fjölmiðlar hafi lagt kirkjuna í einelti vegna umfjöllunar um viðbrögð kirkjunnar í kjölfar málefna sem snúa að Ólafi Skúlasyni.

Lesa meira →

„Drullisti bara út og vinnið þennan leik!“

Valur varð á laugardaginn Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í fimmta skipti í röð þegar liðið bar sigurorð af Aftureldingu, 8-1, í Mosfellsbænum. Fyrir umferðina datt engum í hug að Valur yrði Íslandsmeistari þar sem Breiðablik, þeirra helsti keppinautur um titilinn, átti að því virtist auðveldan leik gegn öðru af botnliðum deildarinnar, FH.

Lesa meira →

Hildur segir alla söguna um morðið í Hafnarfirði

„Það var margt sem benti til þess að hann hefði gert þetta. Svo var líka svo margt sem benti til þess að hann hefði ekki gert þetta eins og til dæmis það að hann leyfði mér að labba inn eftir að hann skutlaði mér heim, og hann sendi mér samúðarskeyti á Facebook,“ segir Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir aðspurð um það hvort játning Gunnars Rúnars Sigþórssonar á morðinu á Hannesi Þóri Helgasyni, unnusta hennar, hefði komið henni á óvart.

Lesa meira →