Exeter Holdings ehf.
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item260587/
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/04/20/tengjast_ekki_exeter_holding/
Grein Ágústar Sindra Karlssonar í Morgunblaðinu 17. apríl 2009:
Exeter Holdings ehf.
Ágúst Sindri Karlsson fjallar um viðskipti Exeter Holdings
Á síðustu dögum hafa fjölmiðlar fjallað um fjármál og eignarhald einkahlutafélags í minni eigu, nánar tiltekið Exeter Holdings ehf., kt. 561002-2150.
Því miður hefur fréttaflutningur verið grundvallaður á misskilningi, en tilgangur minn með greinarskrifum þessum er að leiðrétta þann misskilning sem hefur verið uppi.
Undirritaður var lögmaður MP Verðbréfa hf. og síðar MP Fjárfestingarbanka og loks MP banka, frá stofnun 1999 til ársloka 2006. Ég sat jafnframt í stjórn bankans frá stofnun til júlí 2008.
Eitt af verkefnum sem ég annaðist fyrir MP banka á tímabilinu frá 2002 til loka árs 2005 var framkvæmdastjórn fyrir félagið Heildun ehf., en það félag hafði fjárfest í ýmsum hlutafélögum og verkefnum. Meðal verkefna Heildunar var þátttaka í einkahlutafélaginu Heilsusjóðnum ehf., kt. 561002-2150 (m.ö.o. því félagi sem nú heitir Exeter Holdings). Stofnendur þess félags voru m.a. aðilar tengdir MP banka, og voru þeir hluthafar í félaginu fyrstu árin, eða allt til ársins 2005.
Því verkefni sem Heilsusjóðurinn (þ.e. nú Exeter Holdings) tók þátt í lauk á árinu 2004 án árangurs. Nú þekkist að menn slíti félögum, en því fylgir kostnaður. Því var niðurstaðan sú að undirritaður keypti öll hlutabréf í félaginu árið 2005 af fyrri hluthöfum, með það fyrir augum að koma því í önnur verkefni. Með þessu lýkur öllum afskiptum fyrri hluthafa af félaginu.
Síðari hluta árs 2006 tókst Heilsusjóðurinn (Exeter Holdings) á hendur nýtt verkefni sem fólst í því að vera vettvangur fyrir sprotafyrirtæki í húsnæði að Reykjum í Hveragerði. Um sama leyti var nafni félagsins breytt úr Heilsusjóðnum yfir í Tæknisetur Arkea ehf., kt. 561002-2150. Á sama tíma voru öll hlutabréf í félaginu framseld til Arkea ehf. Rétt er að taka fram að Arkea ehf. hefur aldrei fengið lán hjá Byr sparisjóð, þrátt fyrir fréttir um annað.
Tæknisetur Arkea (þ.e. Exeter Holdings) starfaði um nokkurn tíma undir þessum formerkjum en í Suðurlandsskjálftanum vorið 2008 eyðilagðist húsnæðið sem Tæknisetrið hafði komið sér fyrir í og viðskiptahugmyndin lagðist af. Í kjölfarið var félagið aftur framselt til mín með það fyrir augum að koma því í önnur verkefni síðar.
Síðari hluta árs 2008 var nafni félagsins aftur breytt og nú í Exeter Holdings ehf., kt. 591002-2150 og hefur félagið starfað undir því nafni síðan. Félagið er eftir sem áður í eigu undirritaðs.
Hægt er að nálgast framangreindar upplýsingar í opinberum gögnum, svo sem hjá fyrirtækjaskrá og ársreikningaskrá.
Það getur verið að mönnum finnist óeðlilegt að félag skipti um starfsvettvang en í raun og veru er slíkt alþekkt og að miklu leyti sambærilegt við að menn skipta um vinnu.
Það er von mín að þessar upplýsingar hafi eytt misskilningi varðandi eignarhald á hlutabréfum í Exeter Holdings.
Samhliða ofangreindum leiðréttingum vil ég taka fram að ég hef fulla trú á Byr og því frábæra starfsfólki sem þar starfar.
Ég hef verið áhugamaður um sparisjóðakerfið um árabil og ég sakna þess að geta ekki gengið að öflugum sparisjóð í heimabyggð. Ég tel því að samruni sparisjóða hafi gengið of langt og að æskilegt sé að endurvekja sparisjóðakerfið, sem sparisjóði bæjarbúa, sem starfa í þeim anda sem lagt var upp með við stofnun sparisjóða með samfélagsleg markmið að leiðarljósi.
Þannig mætti sjá framtíðina með þeim hætti að samruni sparisjóða yfir í Byr sparisjóð yrðu látin ganga til baka og endurvekja þannig SPH, SPK, Sparisjóð Norðurlands og SPV. Hægt væri að sjá fyrir sér að Byr legði fram stofnfé í fyrstu atrennu, en síðan væri leitað aðkomu sveitarfélaga og nýrra stofnfjáraðila. Byr gæti þá verið nokkurs konar móðurfélag í upphafi sem annaðist sameiginlega þjónustu. Það er skoðun mín að ný stjórn sem kosin verður á aðalfundi sjóðsins, 13 maí n.k. ætti að hafa endurskoðun á skipulagi á verkefnaskránni.
Annað verkefni sem ég tel að ný stjórn ætti að skoða ásamt stjórnendum sjóðsins en það er hvort hægt sé að leysa skuldamál einstaklinga með einhvers konar lánasjóðsleið þar sem greiðsluplan miðast við fasta greiðslu og ráðstöfunartekjur til ákveðinna ára, en það sem viðkomandi næði ekki að greiða á þeim árafjölda yrði afskrifað.
Varðandi kaupin á stofnfjárbréfunum í Byr þá var málið kynnt fyrir undirrituðum sem áhugaverður fjárfestingarkostur. Á þeim tíma var eigið fé sjóðsins um og yfir 50 miljarðar og félagið nýbúið að greiða yfir 13 milljarða sem arð til stofnfjáreiganda. Með kaupunum sá ég einfaldlega ágætt fjárfestingartækifæri auk möguleika til að geta haft áhrif á framtíð sparisjóðsins.
Rétt er að halda því til haga að lántaki vegna kaupa á bréfunum í Byr hefur frá upphafi verið Exeter Holdings hf. Í fyrstu kom þó eldra nafn félagsins, þ.e. Tæknisetur Arkea ehf., fram á lánapappírum. Þetta var síðan leiðrétt en engar breytingar hafa orðið á greiðanda skuldarinnar.
Ég tel mikilvægt að stofnfjáreigendur standi saman til að tryggja rekstur Byrs sparisjóðs til framtíðar og skapa frið um starfsemi sjóðsins.
1 » Mjög einkennilegt
Þessi kaup á stofnfjárbréfum BYR eru afskaplega einkennileg. Annað hvort er Ágúst Sindri mjög óvarkár og hreinlega kjáni í fjárfestingum eða að hér eru torkennileg viðskipti á ferðinni. Ég held að Sindri sé hvorki óvarkár né kjáni í fjárfestingum.
Skrá nýja athugasemd