Dótturfélagið í Kópavogi
Fjölmiðlar hafa greint frá því undanfarnar vikur að Kópavogsbær hefur skipt við Frjálsa Miðlun, fyrirtæki í eigu dóttur Gunnars Birgissonar, fyrir tugi milljóna króna á valdatíma Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Nú síðast hefur endurskoðunarfyrritækið Deloitte lagt fram greinargerð sem fyrirtækið vann fyrir bæjarráð Kópavogs um þessi viðskipti.
Í þeim gögnum sem fram hafa verið lögð kennir ýmissa grasa og greiningar á þeim munu birtast hér smám saman, en byrjum á því myndræna sem ekki hefur verið sýnt fram á áður.
Frá 1. janúar árið 2000 til og með 30. apríl 2009 hafa viðskipti við Frjálsa miðlun verið svo stöðug og jöfn að einungis hafa fallið niður reikningsfærslur fyrir sjö af þessum 112 mánuðum. Ef við skoðum þetta myndrænt þá lítur það svona út. Mánuðir sem reikningar voru gefnir út í eru rauðir:
| ár/mán | jan | feb | mar | apr | maí | jún | júl | ágú | sep | okt | nóv | des |
| 2000 |
||||||||||||
| 2001 | ||||||||||||
| 2002 | ||||||||||||
| 2003 | ||||||||||||
| 2004 | ||||||||||||
| 2005 | ||||||||||||
| 2006 | ||||||||||||
| 2007 | ||||||||||||
| 2008 | ||||||||||||
| 2009 |
Hæstu fjárhæðirnar eru í apríl 2005 (1.426.006 kr.), ágúst 2005 (1.353.315 kr.), júlí 2007 (1.297.290 kr.) júní 2008 (1.182.750 kr.) og júlí 2008 (1.070.700 kr.)
Lægstu fjárhæðirnar eru í október 2003 (24.900 kr.), nóvember 2002 (30.001 kr.), nóvember 2000 (35.001 kr.), febrúar 2000 (43.575 kr.) og febrúar 2006 (49.800 kr.)
Sjá nánar neðangreinda töflu. Litirnir eru "hita"næmir, þannig að því hærri sem greiðsla mánaðar er, þeim mun rauðari er reiturinn:
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | júl | ágú | sep | okt | nóv | des | Samtals | ||
| 2000 |
747.000 | 43.575 | 373.500 | 0 | 62.250 | 62.250 | 311.250 | 0 | 373.500 | 398.400 | 35.001 | 398.400 | 2.805.126 | |
| 2001 |
62.250 | 653.625 | 325.626 | 242.775 | 0 | 155.625 | 361.050 | 124.500 | 460.650 | 149.400 | 0 | 237.995 | 2.773.496 | |
| 2002 |
715.875 | 897.000 | 182.275 | 278.939 | 765.250 | 466.875 | 549.045 | 485.550 | 311.250 | 455.826 | 30.001 | 611.295 | 5.749.181 | |
| 2003 |
249.000 | 910.073 | 772.500 | 747.000 | 404.625 | 579.026 | 772.500 | 575.813 | 516.279 | 24.900 | 361.050 | 723.656 | 6.636.422 | |
| 2004 |
186.750 | 74.700 | 700.313 | 281.970 | 323.700 | 300.001 | 818.876 | 342.375 | 186.750 | 311.250 | 666.075 | 486.750 | 4.679.510 | |
| 2005 |
62.250 | 622.500 | 647.400 | 1.426.006 | 699.690 | 357.315 | 498.000 | 1.353.315 | 510.450 | 684.750 | 498.000 | 734.550 | 8.094.226 | |
| 2006 |
667.320 | 49.800 | 292.575 | 883.950 | 777.500 | 611.250 | 622.500 | 821.700 | 74.700 | 958.650 | 535.350 | 373.500 | 6.668.795 | |
| 2007 |
373.500 | 373.500 | 417.075 | 0 | 622.500 | 747.000 | 1.297.290 | 510.450 | 930.210 | 0 | 713.340 | 59.760 | 6.044.625 | |
| 2008 |
249.000 | 709.650 | 684.750 | 510.450 | 684.750 | 1.182.750 | 1.070.700 | 522.900 | 435.750 | 622.500 | 249.000 | 68.475 | 6.990.675 | |
| 2009 |
373.500 | 522.900 | 0 | 149.400 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 1.045.800 | |
| Samtals | 3.686.445 | 4.857.323 | 4.396.014 | 4.520.490 | 4.340.265 | 4.462.092 | 6.301.211 | 4.736.603 | 3.799.539 | 3.605.676 | 3.087.817 | 3.694.381 | 51.487.856 | |
| meðaltal | 368.645 | 485.732 | 439.601 | 452.049 | 482.252 | 495.788 | 700.135 | 526.289 | 422.171 | 400.631 | 343.091 | 410.487 |
1 » Ætlar enginn að segja það?
Það forðast allir að segja það upphátt - en ég hef aldrei séð eins skipulagðan og útsmoginn fjárdrátt á opinberu fé í svona langan tíma. Þetta mál væri grunsamlegt, jafnvel þótt þetta væri EKKI dóttir bæjarstjórans.
3 reikningar sama daginn - eitt fyrirtæki - eitt verk - einn maður sem samþykkir - en samt þrír bókhaldslyklar!
Það er svo augljóslega verið að fela greiðslurnar með því að dreifa þeim á bókhaldslykla, verkefni og sviðsstjóra.
Einhver starfsmaður bæjarins á eftir að koma fram og segja hvernig hann var kurteislega neyddur til að gera þetta. Munnlega að sjálfsögðu. Og sviðstjórarnir virðast allir hafa fundið einherja innri hvöt til að skipta bara við dóttur bæjarstjórans í svona verkefnum.
Hugmyndir fyrir blaðamenn;
Finnið út hvaða ljósmyndir þetta voru sem kostuðu 6 milljónir. Voru sömu myndirnar seldar bænum aftur og aftur vegna nýrra verkefna? Ég hef oft ráðið ljósmyndara vegna verkefna fyrir fyrirtæki eða bæjarfélög. Þeir taka bara myndir á föstum greiðslum og svo á fyrirtækið eða bærinn myndirnar. Hvaða lúxusdíl var Brynhildur Gunnarsdóttir með?
Hvað kostuðu IKEA rammarnir í umhverfisviðurkenningarnar sem greiddar voru samtals 2,4 milljónir fyrir?
Hvernig væri að skoða eina slíka viðurkenningu og fá verðtilboð í að gera grunn sem væri síðan skrifað eða svartprentað á, á hverju ári?
Hvernig væri að fara í saumana á því hvaða verk voru unnin fyrir hvaða pening og hvernig lítur afraksturinn út?
F.
2 » 311.250
Gluggaði í skýrsluna frá Deloitte í gær. Rak augun í að það virtist mjög oft koma fyrir nákvæmlega sama upphæðin, kr. 311.250, undir hinum og þessum bókhaldslyklum og hinum og þessum verkum. Það væri fróðlegt að vita hvort þetta sé eðlilegt og af hverju þetta sé alltaf sama upphæðin.
3 » mikið rétt ...
Fjárhæðin 311.250 kemur 32svar sinnum fyrir í þeim 256 línum sem við höfum upplýsingar um. Fyrir þá sem ekki hafa áttað sig á því, þá er fjárhæðin 311.250 samansett úr 250.000 krónum auk virðisaukaskatts. Ólíkustu verk og verkhlutar reiknuðust á nákvæmlega þessa fjárhæð í gegnum þessi 9 ár.
4 » Svör við spurningum
F,
"Það forðast allir að segja það upphátt - en ég hef aldrei séð eins skipulagðan og útsmoginn fjárdrátt á opinberu fé í svona langan tíma. Þetta mál væri grunsamlegt, jafnvel þótt þetta væri EKKI dóttir bæjarstjórans."
Það vill væntanlega engin fá meiðyrðamálssóknina ef ske kynni að hann yrði sýknaður af ákæru ... kæmi hún fram.
"Hugmyndir fyrir blaðamenn;
Finnið út hvaða ljósmyndir þetta voru sem kostuðu 6 milljónir. Voru sömu myndirnar seldar bænum aftur og aftur vegna nýrra verkefna?"
Þetta hefur verið reynt, en þar sem engin tilgreining er um hvaða ljósmyndir er að ræða er enginn vegur að hrekja eða rekja saman myndir og sölu. Það sem meira er, maður hefur heyrt ávæning af því að hún hafi keypt ljósmyndir á einhverja tugi þúsunda en selt aftur á mun hærra verði. Þetta hefur Tíðarandinn hins vegar ekki eftir staðfestum heimildum og setur það því ekki fram sem fullyrðingu hér.
"Hvað kostuðu IKEA rammarnir í umhverfisviðurkenningarnar sem greiddar voru samtals 2,4 milljónir fyrir? "
Samkvæmt lauslegri könnun kosta sambærilegir IKEA rammar uþb. 1600 krónur í dag.
"Hvernig væri að skoða eina slíka viðurkenningu og fá verðtilboð í að gera grunn sem væri síðan skrifað eða svartprentað á, á hverju ári?"
Hljómar vel. Gæti jafnvel verið hugmynd fyrir grafískan hönnuð með lítið á verkefnaskránni :)
"Hvernig væri að fara í saumana á því hvaða verk voru unnin fyrir hvaða pening og hvernig lítur afraksturinn út?"
Það hefur verið reynt að ákveðnu leyti eins og fréttaflutningur liðinna vikna staðfestir en aftur kemur hér að ónákvæmni í tilgreiningu á reikningum hvað verið er að vinna og því erfitt á köflum að leggja fram haldbærar sannanir um skort á tengslum milli verka og reikninga.
5 » Punkturinn sem myndi segja allt
Ég sakna að hafa ekki fundið upplýsingar um hversu hátt hlutfall af veltu Frjálsar miðlunar, kom frá Kópavogsbæ.
Ef það er t.d. 5% myndi þetta líta allt öðruvísi út en ef hlutfallið væri t.d. 90%.
Er hægt að finna þessar upplýsingar í skýrslunni eða annars staðar?
6 » Nei þessar upplýsingar er
Nei þessar upplýsingar er ekki að finna í gögnunum sem Tíðarandinn hefur í sínum fórum, enda er ekki verið að "rannsaka" Frjálsa miðlun sem slíka heldur viðskipti Kópavogsbæjar við félagið.
Það sem kemur þó fram í greinargerð Deloitte er að á því tímabili sem Deloitte tók til athugunar (janúar 2003 til desember 2008) virðist félagið hafa notað 294 reikningseyðublöð. 185 þeirra voru bókuð hjá Kópavogsbæ á tímabilinu og eins má búast við að einhver eyðublöð hafi verið notuð til útgáfu kreditreikninga eða verið ógild vegna mistaka. Það væri að minnsta kosti hæsta máta óeðlilegt ef ekkert væri um kredit/ógilda reikninga á öllu þessu tímabili.
Þetta þýðir að 2 af hverjum 3 reikningum sem Frjáls miðlun gefur út hefur verið gefinn út til Kópavogsbæjar.
Ársskýrslur Frjálsar miðlunar (samandregnar) fást hjá fyrirtækjaskrá gegn gjaldi. Tíðarandinn tekur fús við afriti af þeim, festi einhver kaup á skýrslunum.
7 » Hversu stór hluti af veltu þessa fyrirtækis voru Kópavogi og LÍN
Getur einhver svarað því hvort umrætt fyrirtæki seldi þjónustu sína til annarra fyrirtækja eða opinberra aðila? Eða er kannski mögulegt að fyrirtækið Frjáls miðlun hafi sérhæft sig í þjónustu við opinbera aðila sem hafa við stjórnvölinn mann að nafni Gunnar Birgison!!
Skrá nýja athugasemd